21.6.2010 | 13:40
Það er ekki málið
Það skiptir engu máli hvað verðum um verðtryggðu lánin því þetta mál snýst ekkert um þau. Málið er að fjármálafyrirtækin buðu upp á ólögleg lán með óvenju góðum vöxtum og fólk þáði það. Í ljós kom svo að verið væri að svindla á þessu fólki og að vissu leiti var þetta fólk gert að fórnarlömbum græðginnar.Með tilkomu þessa dóms kemur að gengistryggð lán eru ólögleg og eru fórnarlömb þeirra lántakendur, ekki lánveitendur. Þeir eru gerendur í þessu máli og lögbrjótar. Þeim ber að refsa á viðeigandi hátt. Tilvalin refsing er t.d. sú sem helst er haldið á lofti, að fella útgengistrygginguna og láta restina standa. Það þýðir þá að fórnarlömbin, þ.e. lángreiðendur fá allt í einu frábær lánakjör. Það þýðir ekki að fólk sem tók vertryggð lán séu allt í einu fórnarlömb. Það fólk tók löglegt viðurkennt lán til að fjármagna það sem það vildi eignast og varð svo ekki fyrir forsendubrestinum sem fylgdi gengisfallinu. Fólk sem tók verðtryggð lán eru ekki fórnarlömb. Það að annar aðili fær allt í einu eitthvað gott en ekki ég eða að nágranni minn fái allt í einu meira þýðir ekki að það sé verið að ræna mig einhverju eða að ég sé að tapa. Það þýðir bara að hugsanlega var staða mín betri fyrir og þarf þar afleiðandi minni hjálp.
En hugsanlega er þetta bara íslenska eigingirnin. Ég vil allt og engin annar má fá neitt. Frjálshyggjan gengur víst út á það. Ég má allt á kostnað allra. Hljómar kunnulega ekki satt? Man einhver eftir bankahruninu sem varð hérna fyrir skömmu? Var það ekki þessi hugsun sem leiddi til þess? Vaknið gott fólk og samgleðjist fólkinu sem hefur verið að ræna undanfarin ár, það er búið að stoppa þessa þjófa. Vonandi nást hinir þjófarnir líka.
|
„Hvað með fólkið með verðtrygginguna?“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.4.2010 | 14:36
Síðasta málsgreinin segir allt
Þetta er það sem er alltaf í gangi á Islandi líka og að mér virðist í vesturheimi almennt að fólk vill fá allt fyrir ekki neitt og með nákvæmlega engri ábyrgð! Heldur fólk virkilega að flugmálayfirvöld hafi bara hlegið og hugsað "já við skulum nú sýna þessum flugfélögum hver ræður múhahahahah!" Nei þau gerðu sitt besta og við getum voða lítið gagnrýnt það svona eftirá því þeir tóku ákvörðunina þegar mikið lá við en ekki þegar nokkrir dagar höfðu liðið í ro og spekt.
Fólk verður að fara að hætta þessum svakalegu dómum á gjörðir stofnana sem við treystum fyrir öryggi okkar. Ef okkur líkar þær illa þá eru leiðir til að knýja fram breytingar þar á. En leiðin er ekki að rakka fólk niður sem er að gera sitt besta. Það sorglega við þetta allt ef við setjum það í íslenskan búning er að við íslendingar hefður brjálast ef yfirvöldin sem við gagnrýnum nú fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir hrun hefðu sett viðeigandi hömlur á fjármálakerfið hér heima sem hefðu komið í veg fyrir hrunið. Við hefðum svoleiðis mótmælt og vælt og heimtað að fá að taka 10 milljón króna myntkörfulánið fyrir jeppanum okkar í friði og hvað í andskotanum kemur það yfirvöldum við! Í því samhengi er fráleitt að gagnrýna yfirvöld sem stóðu vaktina þegar allt fór. Alveg sama hvað þau hefðu gert við hefðum kjöldregið þau fyrir það alveg eins og flugfélögin ætla að gera við flugmálayfirvöld núna. Okkur mislíkar bara það sem kemur okkur illa og er alveg sama þótt við sögðumst vilja það fyrir 10 mínútum. Sem þýðir að við erum bara óábyrg og barnsleg og verðum bara einfaldlega að rekast á veggina sem foreldrar okkar höfðu vit á að passa sig á og hafa margoft varað okkur við.
Semsagt óabyrg, frek börn. það erum við vesturlandabúar. Ég get allavega ekki séð betur.
p.s. og áður en einhver verður sniðugur og ætlar að skamma mig fyrir að þykjast vera betri en þið hin þá er ég alveg með ykkur í þessum hópi, ég er líka áábyrgur frekur krakki því miður :(
|
Líkt við viðbrögð stjórnvalda vegna svínaflensunnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2009 | 13:37
N1 með hálfs milljarðs hagnað!!
Ég held ég þurfi bara að æla! með bensínverð svo hátt, hefðu ekki 400 milljarðar af þessu mátt fara í að lækka bensínverð og styðja við þjóðina á erfiðum tímum? nei ekki olíufyrirtæki á íslandi. Það hugsar bara um rassaboruna á sjálfu sér. Og svo voga þeir sér meira að segja að hækka ekki laun starfsfólks síns og fela sig á bak við samninga sem voru gerðir með fyrirtæki í sæmri stöðu í huga svo að fólkið fengi líklegar að halda vinnunni sinni!!!
Í alvöru mér líður eins og ég þurfi að æla!
Ætli það sama sé ekki uppi á teningnum hjá hinum olíufyrirtækjunum? Bara búið að hækka verðið svo hressilega undanfarið að það flæða peningar inn?
Ég hef allavega ekki áhuga á að versla við N1 eftir að hafa séð þetta. Sjáum til hvað gerist þegar ég sé hin fyrirtækin. Rétt er að taka fram að mér finnst þessi 3 félög vera þau viðbjóðslegustu sem ég hef heyrt af. Þar með talið Enron, fyrirtæki útrásarvíkinganna o.fl. Útrásarvíkingarnir komu þó bara með einn risavaxinn skell. Olíufélögin eru búin að vera að pína okkur hægt og rólega í mörg ár og munu, ef áfram heldur, gera það áfram í áratugi í viðbót.
Skítugt vibbalið!
|
N1 greiði umsamdar launahækkanir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.8.2009 | 14:02
margt gera 17 ára
|
17 ára sigldi umhverfis jörðina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2009 | 18:58
Greinin af Wikileaks
Ég birti hér með greinina eins og hún kemur fyrir á Wikileaks. Áhugavert er að sjá hvort Kaupþing vilji hjóla í mig í framhaldinu til að halda leindinni áfram. Öll þessi leind gerir engum gott og getur ekki annað en hindrað siðferðislega endurbyggingu landsins. Ef við ætlum í raun að byggja landið okkar upp aftur og gera það þannig að réttlæti hafa einhverja merkingu þá verðum við að hætta þessum endalausa feluleik. Fyrirtæki verða að opna reikninga sína og koma fram af heiðarleika. Það er ekkert lögmál sem segir að eina leiðin til að stunda viðskipti er með feluleik, bakstungum og óheiðarleika og í raun er ekkert sem mælir einu sinni sérstaklega með því annað en græðgi. Ég vill sjá heiðarlegt Ísland og ef við snúum ekki við blaðinu munum við bara líkjast gömlu Sovétríkjunum meira og meira með hverjum deginum og hendum svo smá ritskoðun frá kínverjum inn í myndina þar til við verðum búin að missa allt úr höndunum og höfum engan annan rétt en að vera mauraþrælarnir sem stjórnvöld vilja að við séum.
Hér fyrir neðan er greinin eins og hún er birt á Wikileaks. Skýrslan sjálf er ekki hér en ég skal senda hverjum sem óskar eftir henni.
Summary
This confidential 210 page file presents an exposure analysis of 205 companies or groups from around the world each owing the Icelandic bank Kaupthing 45 million to 1250 million euros. Not long after producing this internal report, the bank collapsed.
Kaupthing's borrowers have or had operations in most countries.
Kaupthing previously operated in at least 13 countries, including all the Nordic countries, the Netherlands, Belgium, Luxembourg, Switzerland, the United Kingdom and the United States.
The bank's motto, prominently displayed in this report is Think Beyond.
Within 24 hours of releasing the document, WikiLeaks received a legal threat from Kaupthing's lawyers.
Companies and corporate groups covered:
- Exista Group hf.
- Exista - Exista hf.
- Exista - Bakkabrædur Holding BV
- Exista - Guro Leisure Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Exista - Bakkabraedur Group (Kaupthing Luxembourg)
- Exista - Exista Sub Group (Kaupthing Luxembourg)
- Robert Tchenguiz
- Skuli Thorvaldsson
- Skuli Thorvaldsson (Kaupthing Luxembourg)
- Holt Investment Group Ltd.
- Kjalar
- Kjalar Kjalar hf.
- Kjalar - Iceland Seafood International ehf.
- Kjalar - Samskip Holding B.V. and Samskip hf.
- Kjalar - Olafur Olafsson (Kaupthing Luxembourg)
- Gaumur Group
- Gaumur - Baugur Group hf., BG Equity 1 ehf., F-Capital ehf., BGE eignarhaldsfélag ehf. and Fjárfestingafélagið Gaumur ehf.
- Gaumur - 1998 ehf.
- Gaumur - Eignarhaldsfélagið ISP ehf.
- Gaumur - Hagar hf.
- Mosaic Fashions Ltd.
- Kevin G. Stanford
- Kevin G. Stanford (Kaupthing Luxembourg)
- Antonios Yerolemou (Kaupthing Luxembourg)
- Candy & Candy
- Project Abbey Noho Square
- Candy & Candy (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Landic Property
- Landic - Landic Property hf.
- Landic - 101 Skuggahverfi hf.
- Landic - Þyrping hf.
- Landic - AB113 ehf., AB106 ehf. and Akraland ehf.
- Skipti
- Skipti Skipti hf.
- Skipti - Sirius IT Partner
- Stoðir
- Stoðir Stoðir hf.
- Stoðir - Materia Invest ehf.
- Victoria Properties A/S (FIH)
- Michael Ashley & Sports World International (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Haldor Topsøe A/S (FIH)
- Norvik
- Norvik - Smáragarður ehf.
- Norvik - Straumborg ehf.
- Norvik - JSC Norvik Banka
- Lagerinn
- Lagerinn Dutch Holding - JYSK group
- Lagerinn Dutch Holding - ILVA A/S
- Lagerinn - SMI ehf.
- Danielle/Limebrook
- Daniella/Limebrook - Bay Restaurant Holdings Limited
- Daniella/Limebrook - Town & City Pub Company Limited
- Saxhóll
- Saxbygg - Saxbygg ehf.
- Saxbygg - Saxbygg Invest ehf.
- Saxbygg - Saxhóll ehf.
- Greenland's Home Rule (FIH)
- Danfoss A/S (FIH)
- Össur hf.
- Vincent Tchenguiz
- Vincent Tchenguiz - Pennyrock Limited
- Vincent Tchenguiz - Elsina Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Managing Director Klaus Helmersen and St. Frederikslund Holding A/S (FIH)
- Kwintet AB (FIH)
- Alshair Fiyaz (Kaupthing Luxembourg)
- Foreningen ei invest european retail (FIH)
- Danish Crown AMBA (FIH)
- Nycomed A/S (FIH)
- REIM - Celsius European Holdings Sarl
- Gift fjárfestingafélag ehf.
- EjendomsSelskabet Norden I K/S (FIH)
- Vivian Imerman (Kaupthing Luxembourg)
- Christen Sveaas/Kistefos/AS Holding/Telecom Holding AS
- ST Aerospace Solutions (Europe) A/S (FIH)
- Kaupthing Capital Partners
- Kaupthing Capital Partners II Master, L.P. Incorporated (Kaupthing Luxembourg)
- KCP II ehf (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Sjælsø Gruppen A/S (FIH)
- HUURRE GROUP OY
- Alfesca
- Drög
- Drög - Íslenskir aðalverktakar hf.
- Drög - Drög ehf.
- Drög - Álftárós ehf.
- Drög - Ármannsfell ehf.
- Lornamead Acquisitions Ltd.
- Danske Fragtmænd A/S (FIH)
- A Heeschen & Associated Companies (Kaupthing Isle of Man)
- Proark A/S Michael Kaa Andersen (FIH)
- Umtak ehf.
- Aalborg Industries Holding A/S (FIH)
- Teighmore Ltd & New London Bridge House (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Samson
- Samson - Empennage Inc.
- Samson - Samson eignarhaldsfélag ehf.
- Samson - Rauðsvík ehf.
- DEUGE Deutsche Grundeigentum GmbH + Lundtoftegaard GmbH (FIH)
- Enic International Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Gluma Holding A/S (FIH)
- Tækker Europa A/S (FIH)
- Guldborgsund Kommne (FIH)
- Bakkavör
- Bakkavör Bakkavör Group hf.
- Bakkavör (London) Ltd.
- Arovit Acquisitions APS
- Mengus Stockholm A/S (FIH)
- Rolf Barfoed A/S (FIH)
- Samherji
- Samherji hf.
- Samherji - Snæfell ehf.
- Samherji - UK Fisheries Ltd.
- Samherji - Kaldbakur ehf.
- Giant Bidco (Booker Group plc)
- Toga Pty Ldt. (FIH)
- A-huset Invest A/S (FIH)
- EHI Fund Denmark II ApS (FIH)
- Chestnutbay (Asquith Nurseries)
- Newco Aep A/S ( Wrist Group A/S) (FIH)
- DSV Miljø Holding A/S (FIH)
- A. P. Møller-Mærsk A/S (FIH)
- Peter Shalson Connection (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Chr. Hansen Holding A/S (FIH)
- Primera Travel Group hf.
- Thorkil Andersen Holding A/S (FIH)
- Eik Fasteignafélag ehf
- Sean Dunne Connection DCD Builders, Zaskari Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Saxo Bank A/S (FIH)
- A/S United Shipping & Trading (FIH)
- K/S Danske Immobilien (FIH)
- Eurotrust A/S (Kaupthing Luxembourg)
- Flexlink Holding AB
- Essex Invest Holding A/S and Peter Halvorsen (FIH)
- TDC A/S (FIH)
- Serena Equity Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Egill Agustsson (Kaupthing Luxembourg)
- Ölgerðin Egill Skallagrímsson Group ehf.
- Tower Gate Developments Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- IDdesign Holding A/S (FIH)
- Unity Investments (Kaupthing Luxembourg)
- Novozymes A/S (FIH)
- Hekla
- Hekla hf.
- Hekla - Hekla fasteignir ehf.
- Vífilfell
- Vífilfell - Vífilfell hf.
- Vífilfell - Sólstafir ehf.
- Arla Foods AMBA (FIH)
- NKT Holding A/S (FIH)
- Aarhuskarlshamn AB (FIH)
- Invent Farma ehf.
- GN Store Nord A/S (FIH)
- Ecco Sko A/S (FIH)
- Penninn
- Penninn - Penninn ehf.
- Penninn - Officeday Finland Oy
- Pandora Holding A/S (FIH)
- CD Group - AKER
- Steen Bryde Bryde Gruppen ApS and I/S Strandvejen 56-58 (FIH)
- Bankside Holdings Ltd & Bullion Investments Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Paigle Properties (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Burgundy Sea Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Kaupfélag Skagfirðinga
- KS - AB 57 ehf.
- KS - Fóðurblandan hf.
- KS - Fisk Seafood hf.
- KS - Kaupfélag Skagfirðinga
- Ferrosan A/S (FIH)
- BM Vallá
- BM Vallá - BM Vallá ehf.
- BM Vallá - Fasteignafélagið Ártún ehf.
- Graham Harris Connection (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Carlsberg A/S (FIH)
- Wavin N.V. (FIH)
- Horst Gassmann (FIH)
- Steen Larsen /SL Nordic Holding ApS (FIH)
- Sund ehf.
- Dustin Group AB
- Framherji Group Sp/f
- Huscompagniet A/S (FIH)
- Felicitas Intressenter AB (FIH)
- DLG Dansk Landbrugs Grovvareselskab AMBA (FIH)
- PWT Holding A/S (FIH)
- Sanitec OY (FIH)
- JM Danmark A/S (FIH)
- EBH-Fonden (FIH)
- Bleiksstaðir ehf.
- Flugstod Leifs Eirikssonar hf. (FLE)
- Lastas A/S (FIH)
- DLG Bidco Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Interbuild ApS (FIH)
- KPC Holding A/S (FIH)
- Íslandsverktakar
- Íslandsverktakar - Mænir ehf.
- Íslandsverktakar - Athús ehf.
- Dansk AvisTryk A/S (FIH)
- Energi Randers Holding A/S (FIH)
- Københavns lufthavne A/S (FIH)
- Dong Energy A/S (FIH)
- ADP
- EAV ehf. (Kaupthing Luxembourg)
- Fram Foods hf.
- Superfos A/S (FIH)
- Investea Holding A/S (FIH)
- Nordic Travel Holding AS (FIH)
- AKSO ehf. and Módelhús ehf.
- Filbert Pacific Ltd (Kaupthing Singer & Friedlander)
- Ashwell Property Group (Kaupthing Singer & Friedlander)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2009 | 20:09
Hvað heita leikararnir?
Sjáið þið ekki fyrir ykkur frétt um alþingi þar sem sagt væri frá óþekktum þingmanni sem sagði eitthvað eða gerði eitthvað af því hann er ekki frægur pólitíkus.
Það er ekki það erfitt að skreppa á IMDB og sjá hvað leikararnir heita og geta þar afleiðandi kallað þetta góða fréttamennsku.
|
Slumdog vann á Golden Globe |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2009 | 19:42
Kosningar eru ekki fyrsta skrefið
Hvaða endalausa helvítis vitleysa er þetta alltaf í umræðunni. Hvernig væri að hefja umræður um aðild og athuga hvert samningarnir komast og svo taka afstöðu. Hvaða vitleysa er það að halda að við þurfum að ákveða að ganga í bandalagið og síðan athuga hvaða skilyrðum það fylgir? Allar vangaveltur um fiskveiðistefnuna ætti til dæmis að fá á hreint áður en við ákveðum hvort við séum með eða ekki. Ég hef aldrei getað skilið þessa vitleysu. Hvernig væri bara að ákveða að ganga til samningaviðræðna með það fyrir augum að finna bestu lausnina fyrir Ísland til að ganga inn í sambandið og ákveða svo þegar gróft útlit samningsins myndi lyggja fyrir eða þegar samningar gætu ekki náð lengra fyrir okkur og þá væri hægt að taka upplýsta afstöðu til inngöngu út frá því sem hentar landi og þjóð best. Þetta að ákveða að borða kökuna áður en þú veist hverning kakan er er svo mikil vitleysa í mínum huga og sérstaklega þegar við erum ekki einu sinni búin að spyrja hvort það séu hnetur í kökunni því við erum svo sannarlega með bráðaofnæmi fyrir hnetum eins og er. (áhugaverð myndlíking hjá mér en vonandi fattast þetta)
|
Þjóðin á að kjósa um aðild |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.1.2009 | 15:11
Fjölmiðlarnir munu lifa áfram :D
Ég skrifaði þetta sem athugasemd á öðru bloggi en fanst þetta alveg eiga skilið sér færslu :)
Það er ekkert ólíkt með neinum fjölmiðli á íslandi nú að reksturinn gengur illa hvort sem um áskriftarmiðil eða frían miðil er að ræða. Í þenslu hlýtur það einnig að haldast í hendur að fleyri eru tilbúnir að gerast áskrifendur af fjölmiðlum og þar með aukast auglýsendur þar og tekjur þeirra hækka enn meira. Samanber það að Stöð 2 birjaði að setja uaglýsingar inn í þætti líkt og frístöðin Skjár Einn hefur ætíð gert. Sá leikur gat aðeins komið til af tvennu, annars vegar vildi stöð 2 nýta það sem skjár einn hafði getað nýtt svo vel skítt með áskrifendur sína eða að þeir höfðu skindilega svo mikið af auglýsingum að þeir þurftu að fjölga auglýsingatímum. Hvort það svo er get ég ekki svarað.
Hvað dagblöð varðar þá er Fréttablaðið eina blaðið sem hefur verið rekið í plús í þónokkuð mörg ár. Svo kemur samdráttur og þá segjir fólk já auðvitað gat þetta ekki gengið. Vitleysa og heimska að mínu mati. Það er samdráttur hjá öllum á íslandi og sumir munu falla og aðrir ekki. Skjár Einn stendur enn þó að það sé svosem ekki útséð hvað gerist á endanum en þegar yfirlísingin um að þetta væri honum erfitt og hugsanlega yri lokað álitu margir að allir væru hættir þar og hættu meira að segja að stilla sjónvarpið sitt á Skjá Einn. Slakið á í guðs bænum. Við missum ekki allt þó við missum margt og hættið að þykjast vita eitthvað rosalega mikið um þetta. Viðurkennið bara að þið vitið ekki neitt um þetta alveg eins og ég og allir hinir. Fréttablaðið er að segja að þeir eru að leita leiða til að spara ekki að þeir séu að loka. Mogginn er í margfalt meiri hættu alveg eins og Stöð 2 var í margfalt meiri hættu en Skjár Einn þar til Nonni Ás keypti hana af sjálfum sér og minnkaði hættuna aðeins. Það er ógjörningur að segja hvað gerist með þessi fyrirtæki frekar en landið sjálft. Slökum því bara á og njótum þess sem við höfum á meðan við höfum það.
|
Útgáfudögum Fréttablaðsins fækkað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef verið viðskiptavinur Nova síðan síðasta vor og verið mjög ánægður með allt sem tengist fyrirtækinu og þá sérstaklega með verðskránna sem mér hefur fundist vera einstaklega einföld og ódýr og í raun ódýrasta verðskráin sem völ var á þrátt fyrir að Tal auglýsti á fullu að þeir væru ódýrastir. Munurinn lá í því að Tal var og verður með 10 aurum lægra mínútuverð en Nova en upphafsgjaldið var hins vegar 1.4 krónu hærra og svo rukkar Tal í heilum mínútum en Nova í 30 sekúndum. Dæmið er nefninlega mun flóknara en bara mínútuverðið. Við skulum setja dæmið upp
Lágmark 2 mínútur 5 mínútur
Tal 19.8 kr. 34.7 kr. 79.4 kr.
Gamla Nova 11 kr. 33.5 kr. 78.5 kr.
Nýja Nova 11.75 kr. 33.5 kr. 77 kr.
Ég blanda símanum og Vodafone ekki inn í þessa útreikninga því bæði fyrirtækin eru með nokkuð dýrari þjónustu og er þar að auki mun flóknari. Dæmið sýnir hins vegar að Nova hefur verið og mun áfram verða ódýrara en Tal en hins vegar eru þeir að rugla í fólki að mínu mati. Samkvæmt sölumanni hjá þeim sjálfum er meðalleng símtala úr GSM símum á milli 30 sekúndur og 1 mínúta en nú eru þeir að hækka verðið á öllum símtölum sem eru styttri en 2 mínútur. Þar með telst einnig símtal sem enginn svarar en er flutt í talhólf og skellt er á eftir 1 sekúndu. en það er eitt af því falda hjá öllum símafyrirtækjunum. Lágmarksupphæðin sem gefin er upp hér fyrir ofan er lágmarkið fyrir hvaða símtal sem er, jafnvel þó það sé innan við eina sekúndu.Það skal þó tekið fram að bæði fyrirtækin rukka ekkert fyrir símtöl innan kerfis síns og þá á þetta ekki við þar sem símtalið kostar 0 kr. sama hvað.
Það fer hins vegar mjög í taugarnar á mér að Nova skuli vera að rugla svona í fólki og ég missti svolítið virðinguna fyrir fyrirtækinu þegar þetta var tilkynnt. Sérstaklega eftir ða ég hringdi í þjónustuver þeirra og talaði við afskaplega viðkunnulega stúlku sem vildi ekki alveg skilja hvað ég var að tala um því þeir voru að lækka verðið hjá sér og þetta væri ekki hækkun, bara á upphafsgjaldinu en lækkun á mínútuverðinu en hún neitaði að 50 aura lækkun á mínútuverði og 1 krónu hækkun á upphafsgjaldi hefði neina hækkun í för með sér. Það er greinilegt að Nova er ekki alveg tilbúið að fólk viti að upphafsgjaldið telst líka með frekar en hin símafyrirtækin.
En eins og ég segi þá er Nova ennþá ódýrast og það verður enn meira óumdeilanlegt eftir að nýja verðskráin tekur gildi en mér finnst það mjög lélegt af þeim að villa um fyrir fólki. Ég er bara hreinlega búinn að fá nóg af því að fyrirtæki reyni að plata viðskiptavini sína.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 15:27
Sólrún Stefanía Benjamínsdóttir í framboð
|
Spyr ráðherra hvað vistmenn hafi gert af sér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

